Bara dáááinn ?
Þannig mér leiðist og ég ákvað að setja saman lista sem ég kalla "nehhh, er þessi dáinn?"
Justin Pierce (1975-2000)

Justin Pierce lék Casper í myndini Kids sem kom út 1995 en fékk svo voðalega lítið að gera eftir það. Einstaka hlutverk í litlum myndum. Hann framdi síðan sjálfsmorð á hótelherbergi í Las Vegas eftir að hafa rifist við kærustuna sína árið 2000.
Jonathan Gregory Brandis (1976-2003)

Ég man nú best eftir þessum leikara í Seaquest þáttunum og svo náttúrulega var hann í eðalhrollvekjuni IT. Jonathan hengdi sig svo árið 2003.
Lane Smith (1936-2005)

Lane Smith er búinn að birtast í nær 100 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Held að hann sé nú best þekktur fyrir hlutverk sitt í Lois & Clark þáttunum víðfrægu. Hann lést árið 2005 úr Lou Gehrigs sjúkdómnum.
JT Walsh (1943-1998)

Hrikalegur töffari í öllum myndum sem hann lék í. Það er gaman að skoða síðuna hans á imdb því hann nær alfarið leikið annaðhvort hermenn, lögreglur eða einhvern yfirmann. JT lést að sökum hjartaáfalls árið 1998.
David Graf (1950-2001)

Jebb... Tackleberry er dáinn! David Graf er langþekktastur fyrir að leika Tackleberry í Police Academy myndunum en hefur þó komið fram í fjöldanum öllum af allskyns sjónvarpsþáttum. Hann lést þegar hann fékk hjartaáfall árið 2001 þegar hann var í fjölskyldubrúðkaupi.
Paul Gleason (1939-2006)

Harðjaxlinn Paul Gleason er yfirleitt þekktastur fyrir að leika skólastjórann í 80's undrinu "The Breakfast Club". Ég held ég hafi nú samt aldrei séð hann leika neitt nema einhverja gríðarlega töffara og skapstóra yfirmenn fyrir utan skólastjórann. Hann lést árið 2006 úr lungnakrabbameini.
Raul Julia (1940-1994)

Pabbinn í Addams Family, Vondi kallinn í Street Fighter og Doctor Frankenstein er dáinn. Það eru jú komin 13 ár síðan hann lést en samt telst hann með í þessum lista mínum. En já, hann lést árið 1994 vegna krabbameins.
Barney Martin (1923-2005)

Þekktastur fyrir hlutverk sitt sem pabbinn í seinfeld þáttunum. Barney Martin lék að mestu leiti í gamanmyndum á sinni ævi, t.d. lék hann í upprunalegu "The Producers" frá 1968. Hann lést árið 2005 úr krabbameini.
Matthew McGrory (1973-2005)

Matthew Mcgrory er skráður í heimsmetabók Guinness fyrir stærstu skóstærð (stærð 29 í ameríku). Hann var rétt tæpir 2.30cm á hæð og lék hann að mestu skrímsli í myndum. Hann lést aðeins 32 ára gamall af náttúrulegum orsökum.
Bruno Kirby (1949-2006)

Lék nær alltaf gangster. Ég man nú alltaf mest eftir honum í Godfather II. Hann lést árið 2006 úr hvítblæði.
Chris Penn (1956-2006)

"Litli" bróði hans Sean Penn. Lék yfirleitt löggu eða bara yfirhöfuð illa menn. Hann lést árið 2006 vegna hjartasjúkdóms.
Jim Varney (1949-2000)

Ernest er búinn að vera dáinn í sjö ár. Honum tókst þó að gera einhverjar 15 Ernest myndir áður en hann lést úr lungnakrabbameini árið 2000.
Dettur þér í hug einhverjir fleiri sem gætu verið á þessum lista?
Þ.e.a.s leikarar sem engin man nöfnin á sem eru dánir...
víííííííííí tiiiiiil söööööööööluuuuu !!!!!!!!!!
Sparnaðarráðstafarnirnar er að fara í fullt gang og byrja ég á því að selja vesalings Wii tölvuna mín.
Endilega kaupið hana af mér og gefið henni gott heimili.
http://www.cliqueybastards.com/wii/
Ţetta er raunveruleikasjónvarp !!!
Jeeeeminn eini !
Hef ekki einu sinni litið á síðuna núna í rúma tvo mánuði!
Og hvaða fjögurra manna lið er þetta sem kemur hingað daglega í leit að nýrri færslu?
En það að maður hafi ekki látið eitt einasta orð út úr sér svona lengi þýðir náttúrulega bara eitt; maður hefur loksins eitthvað til að blogga um !
Fyrstu og stærstu fréttirnar; ég og Sigurlaug erum að flýja af skerinu eftir eitt ár!
Jebb, ætlum að láta lokka okkur til Danaveldis, land gulls og grænna skóga.
Við förum að öllum líkindum til Horsens og stundum okkar nám við Vitusbering, sem ég held að eigi ekki eftir að heita það ennþá þegar við loksins komumst út því þegar ég kíkti á heimasíðu skólans á laugardaginn síðasta þá var búið að tilkynna sameiningu fimm skóla á Jótlandi og sýnist mér þeir heita VIA.
En já, ég er búinn að ákveða loksins hvað ég ætla að læra, var fyrst með augun á byggingaverkfræðini en snarsnérist svo út í tölvunarfræðina (IT engineering).
Sem betur fer er námið allt á ensku þannig maður situr ekki fyrstu vikurnar bara með slefuna lafandi munnvikinu og grætur allar nætur.
Sigurlaug þarf samt að hafa aðeins meira fyrir náminu sínu; sem kallast upp á dönsku Pædagog sem er víst samblanda af þroskaþjálfa, leikskólakennara, leiðbeinanda og ég veit ekki hvað og hvað. Allt á dönsku.
En ég svosem ekki miklar áhyggjur af því... maður byrjar daginn bara á 4-5 öl og rifjar svo upp dönskutímana í den með Kela og lætur það fleyta sér út daginn.
Nú verður bara farið á fullt að finna húsnæði þarna úti því við erum búinn að vera að heyra af því að biðlistinn sé frekar langur.
Svo eru komnar í gang heljarinnar sparnaðarráðstafanir því það gengur ekki að fara út í skóla nema vera gjörsamlega skuldlaus og helst með nokkra hundraðþúsundkalla í plús. Við erum búinn að skipta á nýja, fína og flotta Lettanum okkur fyrir litla bláa pöddu að nafni Kalos og lítur allt út fyrir að paddann komi með okkur til danaveldis þegar að því kemur.
Einnig þurfum við að selja flest allt sem við eigum af húsgögnum og því sem við tökum ekki með okkur. Þar með talið er íbúðin sem við ætlum að selja um áramótin og ráðumst inná foreldrahúsin eftir það.
En nóg af bölvuðum baununum.... margt annað að frétta.
Við vorum svo fjandi grand á því um daginn að fara til höfuðborgarinnar í leikhús. Þetta var reyndar uppblásið staffapartý hjá Sigurlaugu og ég fékk að fylgja með.
Brunað í Borgarnes á laugardeginum þar sem gríðarstór rúta tók á móti okkur og síðan farið með henni á skagan til að sækja eitthvað haugdrukkið fólk sem tilheyrði þessum hóp.
Verkið sem var fyrir valinu var "Lík í óskillum" í Borgarleikhúsinu... það var eitthvað búið að ræða fyrir ferðina að tjéð leikrit hefði aðeins sankað að sér einni eða tveimur stjörnum í hinum og þessum gagnrýnum og vissi fólk ekki alveg við hverju var að búast.
Þetta var alveg hreint prýðilegt leikrit og bara ekta farsi sem ekkert var hægt að kvarta yfir. Eftir leikhúsið fór rútan með haugdrukkinn herinn í einhverja gróðrarstöð á milli mosó og rvk þar sem boðið var upp á heilu hæðirnar af bjór.
Þar gat maður sötrað smá, fylgst með drukkna fólkinu og farið síðan aftur uppí rútuna og notið þess að komast heim loksins.
en jæja... ég ætla að segja þetta bara gott í bili.... því einsog maðurinn sagði "Þetta er alltof langt hjá þér!!"
ććććfón...
Nokkrir punktar sem ég hef verið að lesa um og séð í ýmsum reviews á netinu:
- Síminn verður að öllum líkindinum áfram samningsbundin símafyrirtækjum
- Ef rafhlaðan verður léleg getur þú ekki keypt þér bara nýja rafhlöðu og skipt um. Rafhlaðan er lóðuð föst inn í síman og þarf því að senda síman í viðgerð til að láta skipta um rafhlöðu. (+ það þarf að rífa síman í sundur til að skipta um það)
- Það eru aragrúi af öðrum símum með snertiskjá og hafa þeir verið á markað í þónokkurn tíma.
- Þetta útlit er ekkert nýtt
- Það er bluetooth í símanum... en getur aðeins verið notað til að tengjast headsetti en ekki við tölvu.
- Þegar síminn er tengdur við tölvu er hann bundinn við itunes.
- Myndavélin er aðeins 2megapixla og hefur enga aukafítusa (til samanburðar hefur Nokia N95; 5 megapixla myndavél)
- Þú getur ekki sett þína eigin hringitóna (tímaspursmál, en ég er alveg pottþéttur á því að þegar að því kemur að þetta verður möguleiki þá bindist þetta ábyggilega allt saman við iTunes)
- Eina sem þú getur breytt í símanum og gert að þínum er skjámyndin.... en hún sést ekki nema lyklaborðið sé læst.
- Það er ekki hægt að setja skjöl inn á síman og skoða (pdf, word og excel skjöl).. það er aðeins hægt að skoða þau ef þú færð þau í tölvupósti
- Engir leikir... ekki einn einasti.
- Ekkert speed-dial... Það er víst eitthvað sem heitir quicklist en það tekur mun skemmri tíma að stimpla bara inn númerið
- Ekki hægt að taka upp video
- Ekki hægt að senda MMS

Þetta verður eins með þennan síma og ipod... Tískufyrirbrigði.
Apple framleiða túndur tölvu og eðal stýrikerfi í þær en þetta finnst mér voðalega leiðinlegt.
Ég læt það vera að tuða yfr ipod því það tæki finnst mér það allra ofmetnasta tæki sem framleitt hefur verið... það eru mörg hundruð mp3 spilarar á markaðnum sem hafa höfuð og herðar framyfir ipod.
Ef ég væri spenntur fyrir einhverju símtæki þá væri það openmoko
Lélegasti bloggari sögunar...
Jább... ég er alveg að nálgast þann titil....
Ekki uppfært bloggið síðan 16 febrúar ! Ég verð að segja að þegar maður stendur sig verr í bloggbransanum heldur en Bjartur, þá stendur maður sig anskoti illa. Ég er alveg að fara að ná Grjótinu í bloggleti !
En já, það verður að segjast að lítið hefur drifið á daga mína síðan í síðustu færslu þannig ég ætla að mestmegnis tuða það sem eftir er að þessa færslu...
Frú Skjóldal og ég fjárfestum í gæludýrum! Jebb.... þessum líka fínu „mousters“ einsog þeir virðast vera kallaðir vanalega á engilsaxneskuni.
Ástæðan er líklega sú að þessi kvikindi líta svona nokkurnvegin út eins og mýs en samt ekki... Þetta eru Bósi og Andri; Kínverskir dverghamstrar.
Bósi er feitur en svo skemmtilega vill til að Andri er sá bældi... (klappið höndunum saman og þið eruð kominn með Grjótið í hendurnar) 
Það er annars lítið sem ekkert að frétta af manni... ég er svona alveg við það að fara að gjörsamlega drepast út stressi útaf vinnuni núna síðustu vikur... Það vill nefnilega svo heppilega til að ég hef verið einn þarna síðustu vikur.
Miðað við síðustu 3-4 fjórar vikur þá er ég barasta steinhissa á því að ég skuli ekki hafa dottið niður dauður úr stressi fyrir allvega þremur vikum síðan.
En það koma alltaf frídagar. En það vill svo ótrúlega vel til að bæði símanúmerin mín eru skráð í símaskrána og allavega einn tíundi þeirra sem hafa hringt í mig vita að ég heiti Ægir.... þannig að frídagar hafa helvíti oft verið erfiðir á símann minn.
Yfirleitt er það fólk sem segir eftirfarandi setningu:
„Gætir þú ekki kíkt hingað heim í kvöld og kíkt á þetta?“
...sem ég svara ansi oft með:: „Ég hugsa að ég hafi ekki tíma til þess í kvöld og svo er ég er ekki einu sinni með bíl, þannig ég get ekki komið“**
**: þetta þýðir vanalega: ÉG ER EKKI Í VINNUNI!!!! EF ÉG VÆRI BIFVÉLAVIRKI, OG ÞAÐ VILDI SVO TIL AÐ ÞÚ ÆTTIR BÍL, ÞÁ MYNDIR ÞÚ VARLA HRINGJA Í MIG NÚNA OG BIÐJA MIG UM AÐ KOMA OG „KÍKJA Á BÍLINN??“, ER ÞAÐ ??!??!?! <<-- Dragðu yfir þetta gráa til að sjá textan
Þá fæ ég í andlitið:
„ég skal bara sækja þig, þú ert enga stund að þessu!“
Jæja, þá er aðalröflið að baki..
Lítið annað að tala um líklega... kannski ég endi þessa færslu á tenglum á nokkrar helvíti sniðugar heimasíður (jebb, netið er meira en bara klám)
Þetta er semsagt síða sem heldur utan um þá tölvuleiki sem eru orðnir að „Abandonware“. Abandonware er hugbúnaður sem er orðin svo gamall að framleiðandi þess hefur ákveðið að ekki sé ólöglegt að stela honum því hann er ekki seldur lengur. Fullt af sniðugum gömlum leikjum þarna
--
Ef ekki væri fyrir þessar síður þá væri leikjaland.is og leikjanet.is ekki til. Þessar fjórar síður eru þær sem bera birgðina af einföldum „Leikjasíðum“ sem gera ekkert annað en að rukka fyrir auglýsingar og stelast inn á verk annara.
Eina fréttasíðan sem vit er í. Kannski ekki beint fréttasíða; heldur samansafn af öllu því sem getur talist merkilegt. Kannski eru fréttir úr tækniheimnum í meirihluta en það leynast allskonar fréttir inn á milli. Þessi síða er helvíti oft á undan öðrum.
Veit ekki hvernig á að lýsa þessari síðu. Búin að vera stór síða síðan allavegana 2001 og er helst frægust fyrir spjallborðið (sem er ekki hægt að senda inn á nema borga sig inn.... eitt af afar fáum spjallborðum sem gengur vel þannig) En annars er þarna ótrúlegt magn að fyndnu efni; þó sérstaklega í „Comedy Goldmine“.
youtube.com er ekki eina video síðan á netinu.
Veldu hvaða sjónvarpsþátt þú vilt horfa á og ýttu síðan á play!
Frítt forrit á hverjum einasta degi. Þegar maður er kominn með þetta í bookmarks þá verður maður bara að kíkja þarna á hverjum degi. Forrit og annað sem vanalega kostar peninga er gefins þarna á hverjum degi. Það verður þó að installa forritið á þeim degi sem það er gefins annars missir þú af þessu.
Íslenskar síður sem sífellt eru uppfærðar með einhverju fræðandi/skemmtilegu...
Enn ein video fćrslan..
Sit bara núna hérna heima og sötra minn bjór. Svo fer morgundagurinn í það að hjálpa Siggu systir og co. að flytja inn í nýja húsið þeirra. Einhver hjátrú hjá þeim víst að laugardagur sé til lukku þannig að þau verða að sofa þarna annað kvöld.
en já... ég verð að fara að taka mig á í þessu bloggdæmi.... djuu...
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHHHHH!!!!
...jæja, taka tvö.
Fyrst mér hefur ekki dottið nokkur skapaður hlutur í hug síðan í gærkvöld þá hef ég ákveðið að gera færslu með örfáum af þessum tenglum sem ég hef rekist á í gegnum tíðina og oftast nær í gegnum Stumbleupon
http://www.dafont.com/
Heill hellingur af gríðarlega flottum, ókeypis leturgerðum í tölvuna þína.
http://cityrag.blogs.com/main/2006/12/the_50_greatest.html
Top 50 bestu teiknimyndir allra tíma... hægt að horfa á þær flestar þarna.
http://freeartsoftware.com/index.htm
Ótrúlega flott þrívíddar og teikniforrit... ókeypis
http://www.wittycomics.com/
Gerðu þína eigin teiknimyndasögu!
http://www.titane.ca/concordia/dfar251/igod/#
Spjallaðu við Guð !!
Þessi síða er svo mikil endalaus snilld að ég á aldrei eftir að ná mér...
Ég er alltof pirraður til að fara í gegnum fleiri síður núna..... bölvað...
Djuuuu
Verð að setja loksins inn einhverja þvælu annað kvöld
